Archive for the ‘Rugl’ Category

Allt á hvolfi

Tuesday, May 29th, 2007

,,Jæja, karlinn. Ertu eitthvað að flýta þér?”
,,Hjálp! Ég.. Ég get varla andað! Og löppin er föst! Ég held að hún sé brotin!”
,,Veistu hversu hratt þú varst að keyra, væni?”
,,Hjálpaðu mér í guðanna bænum! Sjitt, fokk, allt þetta blóð! Ég er að deyja! Hvar er sjúkrabíllinn? Er hann að koma?”
,,Ég hringi eftir sjúkrabíl þegar við erum búnir að ganga frá þessu. Vertu bara rólegur.”
,,Hvað í andskotanum ertu að… ÖÖÖÖööörggghh! Guð minn jesús ég er að æla blóði og galli og þú ert ekki búinn að hringja í sjúkrabíl?”
,,Það er nú óþarfi að vera með ókurteisi væni minn. Svaraðu mér bara! Veistu hversu hratt þú varst að keyra áður en þú veltir bílnum?”
,,Ég veit það ekki! Hvað í andskot… GUÐ MINN ALMÁTTUGUR! HVAR ER HANDLEGGURINN MINN?”
,,Hann sleist af þér þegar þú settir hann út um rúðuna um leið og bíllinn valt. Ég læt þig fá hann á eftir, hafðu engar áhyggjur. Þú færð hann þegar þú ert búinn að svara mér.”
,,ÉG VEIT EKKI HVERSU HRATT ÉG KEYRÐI! HJÁLPAÐU MÉR ANDSKOTINN HAFI ÞAÐ!”
,,Ég skil. Samkvæmt mælinum hjá mér þá varstu á 87. Það er ansi hratt miðað við aðstæður. Hámarkshraðinn hér er 50 og svo er skóli rétt hjá.
Þetta hefði getað farið ansi illa. Ég verð því miður að sekta þig, karlinn. Réttu mér ‘teinið.”

Slys

Thursday, April 5th, 2007

Náttúrulegar einingar

Tuesday, January 9th, 2007

Frægð

Saturday, September 23rd, 2006

Achtung! Start ze reactor!

Sunday, August 27th, 2006

Gamalt efni komið inn

Saturday, July 1st, 2006

Tuesday, June 20th, 2006

Gamalt efni

Tuesday, June 20th, 2006

Ný síða

Monday, June 19th, 2006