Archive for January, 2007

Náttúrulegar einingar

Tuesday, January 9th, 2007

Þegar unnið er með almennu afstæðiskenningu Einsteins er þægilegt að búa til einfalt kerfi eininga þannig að útreikningar verða sem einfaldastir. Þetta er að sjálfsögðu gert með því að skilgreina ljóshraðann, sem á það til að flækjast fyrir í útreikningum, sem töluna 1. Þetta hefur einnig önnur þægindi í för með sér eins og að nú getum við einfaldlega notað metra sem mælieiningu á tíma og þurfum því ekki að baslast með sekúndur, mínútur og klukkutíma. Þannig má segja að klukkuna vantar 485663781960 metra í tvö, sem mundi útleggjast sem: ,,klukkuna vantar 27 mínútur í tvö” ef við hefðum haldið okkur við nú úreltar tímaeiningar. Annað dæmi væri: ,,eftir aðeins 362628957196,8 kílómetra á ég afmæli og verð ég þá orðin 0,34058629701291 exametra gamall” en þá væri aðilinn að sjálfsögðu að gefa í kynna að hann ætti 36 ára afmæli eftir aðeins tvær vikur. Ágæti náttúrulegra eininga er því augljóst; þær bjóða upp á bæði meiri nákvæmni og eru afar einfaldar í notkun þar sem við þurfum aðeins eina einingu í stað tveggja eða fleiri.