Archive for April, 2007

Slys

Thursday, April 5th, 2007

,,Frissi, veistu hvað er það versta við að vera í slökkvuliðinu?”
,,Nei. Hvað þá?”
,,Kúkur. Kúkur og piss.”
,,Hvað ertu að tala um, maður?”
,,Þú lest aldrei um það í fréttunum en þegar við mætum á slysstað, til dæmis til að klippa einhvern úr bíl.
Já, aðallega eftir bílslys. Þá er oft kúkur út um allt.”
,,Ég skil þig ekki alveg. Er fólk að kúka á sig í bílslysum?”
,,Já, sjáðu til. Ef þú bara vissir hvað það er mikið af fólki sem er að flýta sér því að því liggur á að komast á klósettið. Það flýtir sér allt of mikið og dúndrar yfir á rauðu ljósi beint á annan bíl… Nenniru að rétta mér hamarinn?”
,,Já hérna.”
,,Sko, þegar bílinn skellur svo á annan bíl, eða ljósastaur eða hús. Þá leggst bíllinn saman eins og harmonikka. Nema ef þú sért á Land Cruiser eða eitthvað, þá myndiru ekki finna fyrir neinu. En allavega, bíllin leggst saman og mælaborðið fer beint í magann á bílstjóranum. Og ef einhver situr shotgun þá lendir hann í því sama.”
,,Hvað um svona, þarna, airbags dæmi?”
,,Þeir hjálpa þér lítið ef hálfur bíllinn er að reyna troða sér inn í hinn helminginn og þú ert á milli.”
,,Ó, ég skil.”
,,Hvað gerist svo ef þú situr í bíl og ert alveg að skíta á þig, keyrandi eins og vitleysingur, og færð allt í einu mælaborðið og stýrið
og ég veit ekki hvað beint í magann á þér?”
,,Þú kúkar á þig?”
,,Eins og tannkremstúpa. Kúkur upp á bak, hnakka og jafnvel í hárið á þér, ég hef séð það gerast. Stundum fimm krakkar í bíl, allir búnir að kúka á sig og alla hina í bílnum.”
,,Shit.”
,,Einmitt.”
,,En hvað um dauðann.”
,,Hvað um hann?”
,,Er ekki dauðinn verri en kúkurinn. Ég meina, fær það ekki meira á þig að koma að dauðri manneskju sem hefur dáið í bílslysi en einhverri sem hefur kúkað á sig? Eða bara allt blóðið sem hlýtur að vera þarna.”
,,Jú svosem. Býst við því. Það er ekkert gaman heldur… Réttu mér annan nagla.”