Um karlinn
Haukur Sigurðarson heiti ég, hérna ætla ég að segja aðeins frá sjálfum mér.
Ég skapaðist árið 7856 fyrir Krist af hópi af guðum, þ.á.m. Jahve, Krishna, Eros, Xiangui-Sheki og Richard McCollin af Larchmond.
Ég er sem sagt 9860 ára hálfguð, þetta gæti komið sumum á óvart.
Nokkrar staðreyndir um mig:
-Ég byggði pýramídana.
-Ég var fyrsti konungur frakklands.
-Ég veiddi risaeðlur með lásboga í hálft ár sem skiptinemi.
-Ég hef farið tvisvar til tunglsins, annað skiptið syndandi.
-Ég kom með hugmyndina að íkornum.
-Ég er fjórfaldur heimsmeistari í curling. (peningarnir, völdin og konurnar)
-Ég er brúneygður.
-Ég fann upp vatn og lagði grunninn að skuggum.
-Ég réðst inn í fornpersíu vopnaður klukku og sigraði 13.000 manna her.
-Ég lagði undir mig hálfan heimin, í svefni með bundið fyrir nefið.
-Ég tapaði hálfum heiminum í veðmáli um að ég gæti haldið í mér andanum í 3 mínútur.
-Ég vann sem aðstoðarbankastjóri í Elýsíum í 3 ár.
-Ég kafnaði á brjóstsykri og dó fyrir syndir mannkyns. Jesú var krossfestur og fékk alla athyglina.
-Ég vann Lúðvík IV í hnífabardaga, og Gandhi.
-Ég uppgötvaði Evrópu og Nepal.
-Ég barðist í Kóreustríðinu, á móti öllum.
-Ég var fyrstur með að nota orðið ,,stóll”.
-Ég var svartur kúreki í viku, en var hengdur fyrir söng.
-Ég er einnig eina viðurkennda kúreka-geim-vélmenna-sjóræningja-ninjan í hinum vestræna heimi.
-Ég er með 43 doktorsgráður þ.á.m. í eðlisguðfræði og skipasmíði.
-Ég er þyngdarlaus og hálfgegnsær ef horft er á mig frá sérstöku sjónarhorni.
-Ég hef verið skotinn 756 sinnum, stunginn 13 sinnum og kitlaður.
-Ég drap latínu.
-Ég drekk ekki kaffi.
-Ég hannaði ferhyrninginn.